
Ţá er búiđ ađ úthluta blessuđu flennihlussubjálkavirkinu til íţróttamanns ársins. Reyndar er búiđ ađ minnka umfang verđlaunagripsins töluvert, en ódauđleg hönnunin fćr ađ halda sér. Sem er miđur.
Um leiđ er umfang afreka íţróttamannsins minnkađ talsvert og sjóndeildarhringur dómnefndar sömuleiđis ţrengdur. Ađ ţessu sinni var dugmikill boltadrengur fyrir valinu, ţrátt fyrir himinöskrandi tilkall fjölmargra boltatelpna og afrekskvenda til titilsins – og dvergbjálkavirkisins.
Ég get ekki lagt nógu ríka áherslu á ađ viđ umbunum íţróttakonum međ ríkulegum og áberandi hćtti, annars er hćtta á ađ ţćr flosni upp úr íţróttastarfi og leiti á önnur miđ. Til dćmis í stjórnunarstörf eđa hreiđri í auknum mćli um sig í stjórnsýslunni sjálfri – geri jafnvel tilkall til ráđuneytis fjármála.
Sem er grafalvarlegt mál.
Góđir gestir.
Frá og međ morgundeginum, 17. júní, fer ritstjórn Baggalúts í sumarfrí.
Á međan verđur vefsvćđum og gagnageymslum Baggalúts lokađ, međ örfáum undantekningum.
Helstu sönglög Baggalúts verđa áfram ađgengileg, enda varla hćgt ađ gera ţjóđinni ţađ ađ lćsa viđlíka perlur inni á háannatíma útilegumanna og frístundagítarleikara. Í ţví samhengi skal sérstaklega skal minnt á stuđningslag Vigdísar Finnbogadóttur, sem er auđvitađ frábćrt.
Gestapó verđur einnig opin áfram ađ kröfu gesta, ţó líklega eitthvert rask á henni međan tćknideild Baggalúts hlúir ađ og yfirfer kóbalttankana sem hýsa vefinn.
Ađ lokum minnum viđ á ađ útvarpsráđ Baggalúts mun halda áfram daglegum innslögum í dćgurmálaútvarp Rásar 2, enda eru ţeir starfsmenn samsteypunnar enn lausráđnir og hafa ţví ekki rétt á sumarleyfi.
Međ harm í hjarta, vinsemd og virđingu.
Takk fyrir veturinn.
Gleđilegt sumar.