Lesbók06.12.11 — Enter

Hananú! Ætla nú oföldu ríkisbubbarnir í honum Noregi að sníkja af okkur smjör?

Okkur!?

Litla ljóta andarunganum, sem svamlar nú yfirgefinn og afskiptur úti í ballarhafi í eigin skuldasúpu.

Ætlar nú nú gamli gírugi frændinn, sem ekkert hefur viljað með okkur hafa – að laumast með olíubornar krumlurnar ofan í smjörstampinn okkar, eins og ekkert sé sjálfsagðara?

Hvað næst, vilja þeir ekki bara éta frá okkur kornflexið og sofa hjá konunum okkar?!

Þvílkir endemis andsvítans hrokagikkir.

Geta þeir ekki bara étið allt þetta skíðavax sitt? Og skolað því niður með hráolíu?

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182