Forystugrein – Enter
Enter

Hananú! Ćtla nú oföldu ríkisbubbarnir í honum Noregi ađ sníkja af okkur smjör?

Okkur!?

Litla ljóta andarunganum, sem svamlar nú yfirgefinn og afskiptur úti í ballarhafi í eigin skuldasúpu.

Ćtlar nú nú gamli gírugi frćndinn, sem ekkert hefur viljađ međ okkur hafa – ađ laumast međ olíubornar krumlurnar ofan í smjörstampinn okkar, eins og ekkert sé sjálfsagđara?

Hvađ nćst, vilja ţeir ekki bara éta frá okkur kornflexiđ og sofa hjá konunum okkar?!

Ţvílkir endemis andsvítans hrokagikkir.

Geta ţeir ekki bara étiđ allt ţetta skíđavax sitt? Og skolađ ţví niđur međ hráolíu?

Lesbók frá fyrri tíđ

Svo ţađ sé örugglega á hreinu.

Ţegar skuldir lánsjúku súpusetanna verđa afskrifađar, verđa ţeir ţá ekki örugglega fluttir spriklandi í úthverfafjölhýsi sem hćfir ţeirra greiđsluvilja?

Og verđa ţeir ekki ábyggilega dregnir úr afskrifuđu flennijeppunum og trođiđ í rindilbifreiđ sem hentar ţeirra niđurfćrđu greiđslugetu?

Má ekki treysta ţví?

Mér ţćtti nefnilega fimbuldrulluandskoti hart ef hams- og hömlulausu niđursetningarnir sćtu áfram í hégómahöllunum hátimbruđu og ćku enn smáređurbótadruslunum sínum ţegar ég hef yfirtekiđ yfirdráttinn ţeirra.

Ţví ríkiđ – ţađ er ţví miđur ég.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA