Forystugrein – Enter
Enter

Formansslagur sjálfstæðisflokks stendur fyrir dyrum.

Þetta er reyndar fremur átakalítill slagur, eiginlega bara svona vinsamlegur gannislagur – sem endar snarlega ef hárgreiðsla annars frambjóðandans á það á hættu að aflagast. Eða ef annar hvor sýnir merki um að fara hugsanlega að gráta.

Þau eru nefnilega viðkvæm, blómin bláu, sem bjóða sig fram. Tveir undurfagrir nýútsprungnir knappar af sama stilknum. Vökvuð og nærð af sama fólkinu, sprottin úr sömu moldinni, dekstruð af sömu höndum, knúin sömu hvísluðu orðunum.

Þetta er í raun dálítið eins og að velja réttan borðdúk fyrir matarboð. Þetta snýst aðallega um sjatteringu. Hvort passar betur tilefninu – servíettunum og stellinu. Hvort kunna gestirnir betur að meta, ljós- eða dökkblátt?

En auðvitað snýst þetta allt um einmitt það. Réttu sjatteringuna. Allt þarf jú að líta óaðfinnanlega út, áður en veislan getur hafist að nýju.

Lesbók frá fyrri tíð

Hveragerði. Vin í eyðimörkinni. Rós í hnappagati skaparans. Í Hveragerði hefur frumkvöðlaandinn, sem fyllti brjóst landnámsmannanna, varðveist og fundið sér farveg í óþrjótandi sköpun, atorku - menningu.

Saga Hveragerðis er saga hinna miklu sigra; á náttúruöflunum, á takmörkunum mannsandans - á lífinu. Í Hveragerði lækna menn gigt með leðjuböðum. Þar hafa menn með hugviti sínu virkjað jarðvarma og eimorku mannkyninu til framdráttar. Í Hveragerði hafa fleiri ísar verið sleiktir en annarsstaðar á byggðu bóli. Í Hveragerði lifir frjáls hugsun og holdgervist í hugmyndaauðgi og framkvæmdagleði bæjarins íbúa.

Í Hveragerði miðju er lóð. Lóð sem forðum geymdi eitt merkasta mannvirki Íslandssögunnar - paradís á mörkum hins byggilega heims: Tívolí!
Ég man þegar ég fór, lítill drengur, með föður mínum í Kolkrabbann. Ég man eftirvæntinguna, sæluna hríslast um minn barnlitla kropp og þá fró sem fólst í munnfylli af sykurfrauði - bleiku.

En nú hafa Hvergerðingar gert illa í sínar annars óflekkuðu buxur. Þeir hafa selt sjálfa Tívolílóðina fyrir skitnar 50 milljónir króna. Það er jafnvirði þokkalegs húss við Ægissíðu í Reykjavík. Ég skora á yfirvöld í Hveragerði að skila þessum peningum strax, friða Tívolílóðina um alla eilífð og koma þannig í veg fyrir menningarsögulegt stórslys sem mun hafa skelfileg áhrif á komandi kynslóðir.

Númi Fannsker 5/10/05
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 22, 23, 24  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA