
Mikið þykir mér nú vænt um hann Enter vin minn. Hann er skapandi, fallegur, hreinskiptinn, stundum í góðu skapi, oft geðvondur, lítill vinur vina sinna, nískur, illa að sér í mikilvægum málum og orðljótur.
En hann er vinur minn. Og ég elska hann Enter vin minn. Þótt hann sé fáviti.
Undarlegi Enter minn,
ó hve ég þig elska.
Hreinlegur með heita kinn,
hættur loks að deita Finn.
Asnalegi Enter minn,
ó hve ég þig elska.
Í ljósi umræðunnar er kannski rétt að rifja upp nokkrar „falskar minningar“ sem við getum ornað okkur við:
1. Íslendingar eru viðskiptasnillingar.
2. Icesave er tær snilld.
3. Perlan er krúnudjásn Reykjavíkur.
4. McDonalds er komið til að vera á Íslandi.
5. Ísland hefur alla burði til að verða alþjóðleg fjármálamiðstöð.
6. Harpan skal vera tónlistarhús allrar þjóðarinnar.
7. Fíkniefnalaust Ísland árið 2000.
8. Fiskimiðin eru sameign þjóðarinnar.
9. Bandaríkjaher þarf á Íslandi að halda.
10. Ólafur Skúlason, biskup, er hlýr maður.