Forystugrein – Enter
Enter

Rakst áðan á veikburða þýðingartilraun á orðskrýplinum app. Var það þýtt sem appli, sem óneitanlega vekur hugrenningatengsl við ávöxtinn sívinsæla epli.

Nema hvað.

Þetta mætti taka lengra. Hvers vegna ekki að notast einfaldlega við orðið afl?

Menn geta þannig aflað upplýsinga, beitt afli, átt ákveðið aflamagn og kunnað ýmis aflabrögð.

Það besta er samt að þá getur maður ófeiminn iðkað aflapot í símanum sínum.

Lesbók frá fyrri tíð

Það er rétt að nota hér tækifærið og minna landsmenn á að jólin svokölluðu nálgast óðum.

Þrátt fyrir að þetta sé í seinni tíð árviss viðburður hér á landi - og raunar víðar - þá er oft eins og jólin vilji gleymast í amstri hversdagsins. Það er mikil synd því þau ættu að vera kærkomin upplyfting í svartasta skammdeginu og tilefni til hátíðarbrigða.

Gaman væri ef fyrirtæki og verslanir tækju sig til og væru með sérstök tilboð eða kynningar sem tengdust jólunum á einhvern hátt. Vel mætti hugsa sér sérstakar jólaútstillingar í búðargluggum eða jafnvel sérstaka jóla-rétti í matvöruverslunum.

Ýmis skemmtileg hjátrú tengist jólum sem gaman væri að dusta rykið af. Í þjóðsögum segir frá skrýtnum og skemmtilegum körlum, sem nefnast jólasveinar - ekki væri ónýtt að bregða sér í gervi þeirra og skemmta ungum sem öldnum, t.d. á sérstökum dansleikjum eða fjölskylduboðum sem skipuleggja mætti af þessu tilefni.

Einnig skora ég á Þjóðkirkjuna að útbúa sérstaka hátíðardagskrá, jafnvel í samstarfi við fjölmiðla til að fagna fæðingu Jesúss Krists, sem oft er sagður hafa fæðst um þetta leyti.

Ég vona að þessi orð mín veki fólk til umhugsunar og það reyni að haga tíma sínum þannig að tími gefist til hátíðarhalda. Reynið að fá frí frá vinnu og gera ykkur glaðan dag. Skreytið hýbýli ykkar, hóið fjölskyldunni saman og eldið góðan mat.

Ekki gleyma jólunum.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA