
Hvaða flatlýstu fimbulfáráðlingar reka þessa svokölluðu „fréttastofu“ RÚV?
Í fréttatíma kvöldsins stamaði ein hikstandi þykksminkaða þulargufan því út úr sér að einhverjir suðurlandsundirlenskir lúðraþeytarar ætluðu að þjösnast á lagi Páls nokkurs Óskars, Gordjössi.
Það var þá helst!
Nú ætti þessi óábyrga, óupplýsta fréttakytra að skammast til að leiðrétta án tafar þessa vísvitandi rangfærslu, innblásna fáfræði, illu innræti og afdalamennsku – og biðja höfund lags og texta náðarsamlegast velvirðingar á helberum blábjánaganginum.
Bjartmar á betra skilið.
Í morgun las ég um að ætlunin er að halda hátíðina Bears on Ice hér á landi í september. Þar koma saman karlmenn frá ýmsum löndum, sem eiga það sameiginlegt að vera dálítið „bangsalegir“ í útliti og atgervi; stórir snyrtilegir og blíðgeðja menn, oftar en ekki hændir að leðri - með mikinn og óbeislaðan hárvöxt víðast hvar nema á höfði. Svokallaðir dúllubangsar.
Ég hugsaði til þess með hryllingi hvað gerist þegar þessir glaðlyndu, loðnu bangsastrákar stíga hér á land til að njóta innilegra en jafnframt karlmannlegra samverustunda á Íslandi. Grilla saman, borða saman og dúllubossast saman í heitum hveralaugum og köldum verslunarkjörnum.
Ætli þess verði langt að bíða að sturlaðar skyttur, blindaðar af heift og blóðþorsta fari á stjá og reyni að koma þessum blíðu verum fyrir kattarnef, rétt eins og öðrum ráðvilltum bjarndýrum sem hingað villast með opnum hug í leit að frelsi.