Assgoti er ég ánægður með krakkana hjá Arionbanka núna. Þau eru ekki að láta nokkra skitna milljarðaræfla í hagnað þvælast fyrir straumlínulöguninni. Minni banki hefði kannski freistast til að eyða þessu öllu í einskis nýt möppudýr og peningateljara. En ekki krakkarnir í Arion. Ó, nei. Þau vita sem er, að þessir peningar búa sig ekki til sjálfir. Áfram Arion! Húrra!
Djók.