
Jæja þá er enn eitt Baggalútsárið upp runnið og Baggalútur opinn eftir langt og nokkuð leiðinlegt sumarfrí. Fríinu eyddi ritstjórn að mestu á sveitasetri Myglars í Skotlandi við sveppatínslu og fasanaveiðar.
Má segja að verkefni komandi vetrar séu ærin og aðkallandi: Yfirvofandi innrás ofurgreindra þykkblöðunga utan úr geimnum sem ásælast gómsætan og megrandi íslenskan mat, sársaukafullur niðurskurður í framlögum hins opinbera til sjálfbærrar nýtingar á skófum, bygging ríkis og borgar á tónlistarhúsi sem ætlað er að brjóta á bak aftur einokun Hörpu á tónlistarhúsamarkaði, innrás ofurríkra Kínverja á fullkomlega ónothæf fjalllendi, sanda og mýrar og svo framvegis og svo framvegis.
Útgáfufélagið Baggalútur fagnar 10 ára afmæli í ár en vefurinn baggalutur.com fór í loftið haustið 2001. Fimm þúsund þrjú hundruð áttatíu og einni frétt, ógrynni pistla, ljóða, hugrenninga, smáauglýsinga, þrífara, sérvefja, djammmyndasíða, útgáfubóka, skrípamynda, þjóðblogga og maður veit ekki hvað og hvað síðar - heilsar baggalútur.is á nýjan leik, til í slaginn einn ganginn enn. Baggalútur mun fagna afmælinu í vetur með upplestrum, skyggnilýsingarfundum, pulsugrillveislum og ýmsu tilfallandi. Hann óskar sjálfum sér til hamingju með að vera enn í fremstu víglínu íslenskra fréttamiðla. Eftir tíu ár í eldlínunni gnæfir Baggalútur upp úr ólgusjó íslenskrar fjölmiðlunar - eins og klettur í hafinu. Fánaberi sannleikans.
Hljómsveitin Baggalútur vinnur nú að gerð hljómplötu með óútgefnum lögum sem sveitin hefur barið saman af ýmsu tilefni undanfarin ár. Sum þeirra eru þekkt. Önnur óþekkt. Nægir að nefna hið ódauðlega Áfram Ísland, Gjöf (til Vigdísar Finnbogadóttur 80 ára) og Lesbískar ninjavampírur á flótta auk fáeinna glæ- og flunkunýrra laga. Í desember heldur sveitin svo sína árlegu jólatónleika í Háskólabíói og Menningarhúsinu Hofi, landsmönnum og sjálfum sér til ómældrar gleði . Auk þess mun sveitin taka í notkun spánnýtt jólaslagorð, Baggalútur - bestur í jólum.
Ýmislegt fleira, vænt og óvænt, er svo á dagskrá Baggalúts í vetur - bæði skrifað og sungið.
Lifi sannleikurinn!
Íslenski fjárhundurinn Flossy liggur þungt haldinn eftir að hafa mátt dúsa í danskri brunndýflissu allt þetta sumar.
Hvað ætla Íslendingar lengi að þola kúgurum sínum í austri pyntingar og yfirgang? Er ekki löngu kominn tími til að við rísum upp gegn vindlingsdrottningunni Margréti Þórhildi og hennar ölþambandi kónum? Er ekki tími til kominn að við endurheimtum sjálfsvirðingu okkar og stolt?
Ég hvet alla fótfæra menn að taka sér egg í hönd, eða ávöxt - og þeyta í mannvirki og eigur danskra sjóræningja og konungsliða.
Við skuldum Flossy það.