
Vođalegur endemis vandrćđagangur er á ţessu Hagkaupsnafni. Nýveriđ var lagt svo á og mćlt um ađ ţađ skyldi einvörđungu notađ í eintölu - og beygđi sig ţar af leiđandi umyrđalaust undir ţágufalliđ óţjála Hagkaupi. Um leiđ var fleirtölunni Hagkaupum fleytt út í hafsauga – og enginn skyldi framar dirfast ađ kaupa sér klósettpappír, kakíbuxur og kíví í Hagkaupum.
Gott og vel.
En nú er bersýnilega búiđ ađ gleyma öllum fögrum fyrirheitum og loka óhreina i-iđ inni á einhverjum lagernum međ ótíndum rúsínum og rófum - ţví allt mögulegt er skyndilega fariđ ađ fást í Hagkaup, óbeygđu og eintöldu.
Ţessi hringlandi er hreint međ ólíkindum. Og er svosum ekki bundiđ viđ ţessa tilteknu nýlenduvöruverslun. Ég segi ţađ ţví enn og aftur; ef íslensk flennifyrirtćki geta ekki skammast til ađ sćtta sig viđ fjóreina birtingarmynd nafna sinna ţá geta ţau bara haldiđ sig annars stađar - á einfaldari málsvćđum.
Og hvađ gerist svo ef Samkaupum-Úrvali og Hagkaupi hugkvćmist ađ sameina krafta sína? Er ţá hćtta á ađ ţađ myndist málfrćđilegt svarthol sem sogar allt málkerfiđ inn í sig?
Skv. nýrri skođanakönnun vilja 68% landsmanna Ólaf Ragnar Grímsson áfram sem forseta. Ţađ er dágóđur slatti, en auđvitađ er of snemmt ađ spökulera í slíku ţegar fólki hefur ekki veriđ gerđ grein fyrir valkostunum. Reyndar hefur Snorri Ásmundsson listamađur og heilari skýrt frá ţví ađ hann hyggist bjóđa sig fram og sigra.
En hverjir eru hugsanlegir mótframbjóđendur Ólafs Ragnars og Snorra í nćstu kosningum? Mér ţćtti gaman ađ sjá eftirfarandi frambjóđendur:
Ţrátt fyrir ţennan (óska)lista yfir hugsanlega mótframbjóđendur Ólafs Ragnars og Snorra er ađeins einn Íslendingur sem allir vita ađ gćti fellt Ólaf Ragnar. Ađeins ein manneskja nýtur ţess trausts og ađdáunar ađ geta, međ miklum yfirburđum, sigrađ sitjandi forseta í kosningum. Ein kona sem međ brotthvarfi sínu úr stóli forseta Íslands skildi ţjóđina eftir fulla af söknuđi.
Góđu vinir, viđ viljum Vigdísi aftur sem forseta!