
Lágmarkspar dagsins er:
Siðfall - Sáðfall
Jól, fínt. Pakkar, jájá. 13 jólasveinar, kannski aðeins of, en ókei. Jesú - jájá, svona til hátíðarbrigða. Kaupæði, gott og vel. Ofát, jújú svona einu sinni á ári. Jólaboð - ojæja ætli maður láti sig ekki hafa það. Jólaguðspjallið - mætti að sársaukalausu skipta um sögu, en voða jóló engu að síður. Rauðkál og grænar baunir, soldið 2002, en þolanlegt.
En almáttugur Guð og systur hans einhleypar allar. Tónvilltir, raddrúnir og tifandi prestar í hátíðarmessunni, sífrandi líkt og verið sé að velta nýrökuðum aligelti upp úr rakspíra. Nei. Nei, nei og aftur nei.
Þessu bara verður að linna.
Þurfi ég eitt ár til að hlýða á þessi hlustskerandi óhljóð yfir hátíðarmálsverðinum mun ég með tilþrifum taka útvarpið og troða því með allri sinni gleðiraust og helgum hljóm upp í jólabjöllurnar á viðkomandi guðsmanni.