
Það eru nú meiri alltumlykjandi eilífðar ósköpin sem sumir eru heppnir í þessu lífi.
Hugsið ykkur bara að fá spikfeitan og spriklandi lottóvinning greiddan út í hönd í hverjum mánuði – allt árið um kring.
Að vera í svona lottóvinnu, væri það ekki ósköp æðislega indælt?
Sennilega. En því miður er bara einn sigurvegari í mánaðarlega launalotteríinu. Og það er bankastjóri Arjónsbanka.
Og hvers vegna?
Jú. Það er vegna þess að hann á það skilið.
Og hvers vegna á hann það skilið?
Jú. Enginn getur passað peninga betur en hann. Enginn getur gætt þess að ljótir kallar, sturluð stjórnvöld eða úrvinda almenningur geti tekið þá af honum. Og enginn, ekki nokkur einasti lifandi maður, getur látið peningana í Arjónsbanka vaxa jafn hratt og örugglega aftur, þangað til þeir byrja að flæða út um alla glugga og gáttir - eins og þeir gerðu í gamla daga.
Já, öfundsjúku amlóðarnir ykkar. Bankastjóri Arjónsbanka er nefnilega ekki bara ógeðslega heppinn. Hann er líka snillingur.
Og snillingar eru sko ekki á hverju strái á þessu landi. Ónei. Og þeir eru heldur ekki ókeypis. Neibbs.
Þess vegna þarf bankastjóri Arjónsbanka sína mánaðarlegu ríflegafjögurramilljónkróna gullbrydduðu gulrót til að nenna þessu guðsvolaða bankastússi yfir höfuð.
Annars færi hann bara að gera eitthvað allt annað.
Og hver veit hvaða gráðugi happasnúður færi þá að hirða peningana okkar.
Eru nú hæstvirtir alþingismenn endanlega gengnir í barndóm? Eru engin takmörk fyrir því hversu heiftúðlega þessir þjóðkjörnu þorskhausar geta leyft sér að niðurlægja sali Alþingis með bavíanhætti og asnalátum, þá sjaldan þeim þóknast að mæta til vinnu?
Bersýnilega ekki. Þessa stundina stendur nefnilega yfir hin hjárænulegasta biritngarmynd þingstarfa, sjálfast málþófið.
Þá skríða roðamaurarnir, hver á fætur öðrum í pontu og blaðra úr sér garnir og lungu um allt, en aðallega þó ekkert - meðan loftbelgdir stjórnarliðar hrista höfuð, herðar, hné og tær í vandlætingu - en eru um leið að spana vitleysuna upp í málóðum rauðbeðunum með því að gefa sig hvergi.
Með öðrum orðum er þetta sjálfumelska lýðskrumsþý að sóa tíma og fjármunum lýðveldisins í einhverjum forheimskandi sandkassaslag, sem engum gerir gagn.
Eru þessi lítilsnýtu himpigimpi ekki í vinnu hjá okkur?