Forystugrein – Enter
Enter

Í yfirlýsinga- og sjálfumglöðum óhróðurspistli tekur skeggapinn og froðusnakkurinn Númi „Fannsker“ Albertínuson upp hanska fyrir leiðindaskarfinn og spínatætuna Gordon Matthew Sumner, sem af einhverjum illskiljanlegum ástæðum kallar sig „Sting“. Er tilefnið vönduð og fagmannlega unnin frétt um stórmerkilega rannókn sem var unnin í Iðnskólanum í Hafnarfirði.

Vill Númi meina að Sting þessi sé langt í frá jafn leiðinlegur og hann er - og líkir honum við nokkur söguleg partýljón máli sínu til stuðnings; Móður Teresu, Jesú Krist og sjálfan yfirsprelligosann Ghandi (Eða DJ Mahatma eins og hann var jafnan nefndur).

Nú er ég enginn sérfræðingur í yfirgengilegum leiðindum, líkt og Númi - en setningin „Nelson Mandela segir Sting vera fyrirmynd sína í lífinu“ segir held ég allt sem segja þarf um meint skemmtanagildi Stingsins.

Ég læt hér til gaman fylgja brot úr gersamlega óborganlegu uppistandi Mandela frá árinu 1990.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Ekki var við öðru að búast en skotbjálfar myndu mótmæla banni við rjúpnaveiðum. Þeir þurfa nefnilega að fá útrás fyrir hermannakomplexinn sinn með því að spaðskjóta illfleygan hænsnfugl sitjandi á steini. Hvað eiga þeir nú að taka til bragðs? Lesa bók? Ganga á fjall? Fara með börnin sín í Húsdýragarðinn? (það væri reyndar til að æra óstöðugan að sjá allt það kjöt sem þar fer til spillis).

"Það eru engin jól án rjúpu", baula þeir svo hver upp í annan. Eiga þessir menn ekki fjölskyldur til að gleðjast með? Engan sem þeir geta gefið lítinn pakka? "Engin jól" - vesalings mennirnir, blessaðar karltuskurnar. Er nú ljóta kellingin í umhverfisráðuneytinu búin að eyðileggja fyrir þeim jólin? Sjálfur myndi ég sætta mig við gulrót og blóðmörskepp á aðfangadag, það myndi ekki breyta neinu um gleði og helgi jólanna.

Og hvað er með þennan Gunnar Birgisson? Nú hefur hann kvatt sér hljóðs á Alþingi 9 sinnum á yfirstandandi þingi, eingöngu til að tjá sig um tillögu sína um að rjúpnaveiðibannið verði tekið aftur. Önnur mál koma honum ekki við, ekki frekar en önnur mál en hnefaleikar komu honum við á síðasta þingi.
Hann og félagar hans nokkrir vilja ganga þvert á ítarlega rökstuddar og ígrundaðar tillögur sprenglærðra sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar. Þeir vita sumsé betur. Tilhvers í grængolandi fjáranum er yfirhöfuð verið að halda úti slíkum stofnunum ef ekki er tekið mark á ráðgjöf þeirra? Vilja Gunnar og vinir hans ef til vill leggja slíkar stofnanir niður?

Skellið ykkur bara í paintball og étið svo kjúkling um jólin - nóg er til af honum.

Númi Fannsker 6/11/03
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA