Forystugrein – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Í frétt hins sjálfumglaða „frétta-“ og athafnamanns Enters (ef það er þá hans rétta nafn), hér á Baggalúti kemur fram að hljómlistarsnillingurinn og jóginn Sting hafi lengi verið talinn með leiðinlegustu fyrirbærum veraldar. Þetta er rangt.

Sting er nefnilega, skv. rannsóknum sem Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar, OECD, ESA og fleiri óháðir aðilar hafa gert, líklega einn merkilegasti, skemmtilegasti og fallegasti maður sögunnar. Þar trónir hann efstur meðal jafningja á borð við Jesú Krist, Móður Theresu og Ghandi.

Er það tilviljun að UNESCO hefur undanfarin 30 ár stefnt að því að koma Sting á heimsminjaskrá? Er það tilviljun að Nelson Mandela segir Sting vera fyrirmynd sína í lífinu? Er það tilviljun að í Thailandi eru ellefu musteri þar sem Sting er dýrkaður eins og guð? Ég segi nei.

Ég segi: Leirhnoðarinn, puttasleikjan og partígítarfúskarinn Enter ætti að líta sér nær þegar kemur að stjarnfræðilegum leiðindum. Spegill! Enter. Spegill!

Lesbók frá fyrri tíð

Ég hugsa að aðgerðaráætlun AGS sé eitthvað á þessa lund.

Skref nr. 1
Taka yfir stjórn Íslands.
– Fínt æfingasvæði. Ef allt klikkar, tekur hvorteðer enginn eftir því.

Skref nr. 2
Brottrekstur Davíðs Oddssonar. Hreinsanir og hrun sjálfstæðisflokksins.
– Til að vekja falska öryggiskennd hjá alþýðunni (kommunum).

Skref nr. 3
Heimssvínaflensufaraldur.
– Ætti að koma hjólum atvinnulífsins í gang, a.m.k. í lyfja- og heilbrigðisiðnaði.

Skref nr. 4
Heimsstyrjöld.
– Hefur aldrei klikkað hingað til.

Skref nr. 5
Stóri hvellur hinn síðari.
– ATH! Gæti þurrkað út allt hugsanlegt líf í sólkerfinu (þarf ekki að vera alslæmt)

Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 22, 23, 24  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA