
Í frétt hins sjálfumglaða „frétta-“ og athafnamanns Enters (ef það er þá hans rétta nafn), hér á Baggalúti kemur fram að hljómlistarsnillingurinn og jóginn Sting hafi lengi verið talinn með leiðinlegustu fyrirbærum veraldar. Þetta er rangt.
Sting er nefnilega, skv. rannsóknum sem Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar, OECD, ESA og fleiri óháðir aðilar hafa gert, líklega einn merkilegasti, skemmtilegasti og fallegasti maður sögunnar. Þar trónir hann efstur meðal jafningja á borð við Jesú Krist, Móður Theresu og Ghandi.
Er það tilviljun að UNESCO hefur undanfarin 30 ár stefnt að því að koma Sting á heimsminjaskrá? Er það tilviljun að Nelson Mandela segir Sting vera fyrirmynd sína í lífinu? Er það tilviljun að í Thailandi eru ellefu musteri þar sem Sting er dýrkaður eins og guð? Ég segi nei.
Ég segi: Leirhnoðarinn, puttasleikjan og partígítarfúskarinn Enter ætti að líta sér nær þegar kemur að stjarnfræðilegum leiðindum. Spegill! Enter. Spegill!
Nú standa yfir "hrefnuveiðar" þar sem þrír hrefnubátar hafa haldið á miðin. Í humátt fylgja svo hvalskoðunar- og skemmtisiglingabátar, stútfullir af blaðamönnum sem bíða þess í ofvæni að geta nú sýnt heimsbyggðinni myndir af miskunnarleysi íslenskra hrefnuveiði- og vísindamanna.
Einn galli er þó á þessum "veiðum" - ekkert er veitt. Veiðimönnum hefur nefnilega verið skipað að hleypa ekki af fyrir framan myndavélar. Þetta viðhorf er fullkomlega skiljanlegt þar sem erlendir fjölmiðlar hafa gert fátt annað en snúa útúr rökum Íslendinga fyrir hvalveiðum og myndir af dauðastríði hvala eru nú kannski ekki alveg besta framlagið til hlutlausrar umræðu.
Þess vegna skil ég ekki þá íslensku blaðamenn sem taka þátt í þessari kjánalegu eftirför - nú með "varðskip í rassgatinu" eins og fréttamaður Útvarps á Ísafirði komst svo myndrænt að orði. Íslenskir fjölmiðlar eiga að styðja við bakið á löndum sínum í þessu stríði - þessari baráttu fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. ´
Hvað varðar þá báta sem taka þátt í eltingarleiknum þætti mér fullréttlætanlegt að Landhelgisgæslan tæki nú í taumana, eins og henni einni er lagið, til að tryggja vinnufrið á miðunum.