Forystugrein – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Í frétt hins sjálfumglaða „frétta-“ og athafnamanns Enters (ef það er þá hans rétta nafn), hér á Baggalúti kemur fram að hljómlistarsnillingurinn og jóginn Sting hafi lengi verið talinn með leiðinlegustu fyrirbærum veraldar. Þetta er rangt.

Sting er nefnilega, skv. rannsóknum sem Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar, OECD, ESA og fleiri óháðir aðilar hafa gert, líklega einn merkilegasti, skemmtilegasti og fallegasti maður sögunnar. Þar trónir hann efstur meðal jafningja á borð við Jesú Krist, Móður Theresu og Ghandi.

Er það tilviljun að UNESCO hefur undanfarin 30 ár stefnt að því að koma Sting á heimsminjaskrá? Er það tilviljun að Nelson Mandela segir Sting vera fyrirmynd sína í lífinu? Er það tilviljun að í Thailandi eru ellefu musteri þar sem Sting er dýrkaður eins og guð? Ég segi nei.

Ég segi: Leirhnoðarinn, puttasleikjan og partígítarfúskarinn Enter ætti að líta sér nær þegar kemur að stjarnfræðilegum leiðindum. Spegill! Enter. Spegill!

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Menjasafn Baggalúts var opnað formlega á sunnudaginn að viðstöddu fjölmenni. Meðal gesta voru Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Juan Antonio Samaranch, forseti alþjóða ólympíu­nefndarinnar og Bjartmar Guðlaugsson, mynd­listar­maður.

Það var safnstjórinn, Enter, sem klippti á þar­tilgerðan opnunarborða undir söng Kallakórs Baggalúts, sem flutti sönglög sem varðveitt eru í safninu. Að söng loknum lásu leikararnir Gottskálk Dagur Sigurðarson og Lilja Þórisdóttir upphátt úr bókunum Norskir gamanleikir, Segulvindmyllan og fleiri verkum við mikinn fögnuð.
Fyrir hönd þrífara komu saman þeir Barry Gibb, Númi Fannsker og hrúturinn Albert og fluttu lagið Kósíheit in the Stream, eftir Barry. Hrúturinn Albert söng fyrir hönd ærinnar Dollýar - sem var annar upprunalegu flytjendanna. Að lokum fluttu svo félagar í Konunglega danska leikhúsinu við Hlemm valdar samhverfur.

Á sama tíma var opnað myndlistargalleríið Gallerí Rúnk við Hverfisgötu - þar sem sýndar eru ljósmyndir og myndverk úr einkasafni Baggalúts.

Er það von Baggalúts að gestir geti átt dulítið athvarf, ellegar skjól í menjasafninu, en það er opið alla daga vikunnar milli kl. 00.00 og 24.00.

Númi Fannsker 7/3/05
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA