
Ég þyki með greindari mönnum, en þrennt er það sem ég fæ ekki með nokkru móti skilið - hversu mjög sem ég brýt og bramla heilann.
1) Hvers vegna í samdauna sokkaplöggum uppeldissystra andskotans er ekki búið að pusa Samúel komplett inn á tímarit.is? Hvað er eiginlega til mikið af hrossaræktunar- og bæjarmálasneplum sem hafa forgang fram yfir þetta höfuðdjásn íslenskrar menningarsögu á 20. öld?
2) Hví í uppstoppuðum uppvakningaeistum er rúv.is enn að nota þennan mölétna miðlunarspilara Windows á vefsvæðum sínum? Draugúldnara drasl fyrirfinnst ekki á óravíddum alnetsins. Hvað heldur þessi veflufsa að hún sé, búlgörsk munalostasíða?
3) Af hverju hefur engin þessara niðursoðnu, útlægu útræsisrottna, eða einhver heimskríðandi afleggjari þeirra, reynt að kaupa vefsvæði Baggalúts fyrir metfé – bara svo við getum sagt viðkomandi að troða tilboðinu skjálfhendis upp í tambórínuna á sér?
NEI!
Hvaða frostskemmda fiðurhænsn fékk þá firru í höfuðið að Orlando Bloom geti leikið James Bond?
Hann er máski voða krúttlegur í sokkabuxum, með gullslegnu hárkolluna sína og stóra fína bogann. En hamingjan forði okkur frá því að horfa upp á þennan spóleggjaða blómálf panta sér Cosmo á barnum og fara að klípa Q í rassinn.
Til allrar hamingju er ekki búið að fá leyfi hjá foreldrunum til að fastráða krakkakvikindið - en ekki eru aðrir kostir sem nefndir hafa verið skárri. Kollvikadvergurinn Jude Law, ballettdansmærin Hugh Jackman og barnastjarnan Christian Bale.
Svei því.
Vilja þessir apar ekki bara ráða Angelinu Jolie í djobbið, fyrst þeir eru svona staðráðnir í að ráða kellingu? - hún er þó allavega með stór brjóst.