
Af einhverjum ástćđum sér mađur aldrei lengur auglýsingar fyrir Corega Super tannlímiđ. Eđa bara nokkurt annađ tannlím. Hví?
Eru gervitennur 21. aldarinnar međ frönskum rennilás? Eđa ganga menn bara um međ tennurnar dinglandi á gómunum?
Ég varđ óţćgilega var viđ ţađ í gćrkvöldi á heimili mínu, ađ brauđiđ var búiđ.
Ţetta ţýddi ţađ ađ annađ hvort sylti ég heilu hungri eđa ég klćddi mig upp og keypti meira brauđmeti, ţó félítill vćri međ afbrigđum.
Veđur var afleitt en ég harkađi af mér og öslađi í nístingskulda ađ hverfisverslun minni vongóđur um ćti.
En svei ţeim hundingjum sem ţar ráđa ríkjum, ţađ var ţá búiđ ađ loka.
Heldur ţótti mér heimurinn ţví harđur ţegar ég lagđist til svefns, saddur af kexkruđeríi og ostbita - en svikinn um mitt daglegt brauđ.
---
Mér varđ hugsađ til ţessa ţegar ég í dag frétti ađ íbúar Norđur-Kóreu eiga viđ nákvćmlega sama vandamál ađ stríđa.
Nákvćmlega ţađ sama.