Forystugrein – Enter
Enter

Var ađ heyra af breyttu fyrirkomulagi á kjörstöđum, vegna kosninga til stjórnlagaţings. Menn eru víst uggandi vegna himinhás flćkjustigs ţeirra. Hćtt er viđ ţví ađ fólk muni taka sér drjúgan tíma í kjörklefa og ţví hćtt viđ örtröđ á kjörstađ. Og lausnin? Jú, sérstök kjörborđ! Sérsmíđuđ og fjöldaframleidd, sérstaklega fyrir kosningarnar. Á ţessum litlu, semkklegu básum, getur fólk dundađ sér daglangt viđ ađ krossa viđ međ litlu blýöntunum sínum og velta fyrir sér öllum skúmaskotum kjörseđilsins.

Sniđugt.

Ekki vil ég vera leiđinlegur, eđa hnýta í ţessa krúttlegu og byltingarkenndu kjörbása. En mér er engu ađ síđur spurn. Vćri ekki ráđ ađ kynna skipuleggjendur kosninga hér á landi fyrir undrum svokallađs rafmagns og skemmtilegum fylgifiski ţess – tölvutćkninni?

Lesbók frá fyrri tíđ

Jćja. Ţá er ritstjórn Baggalúts komin úr sínu langa og leiđinlega sumarfríi, eina ferđina enn. Ég er ţví búinn ađ snúa viđ skiltinu í glugganum sem á stóđ LOKAĐ en ţar stendur nú OPIĐ.

Nýjungar á vefnum eru nokkrar. Til dćmis er hann öđruvísi á litinn og mér skilst ađ Enter hafi dregiđ úr pússi sínu nýja og áđur ónotađa leturgerđ; „Esbjerg Permo“. Sem er mjög smart. Einnig er nú bođiđ, í fyrsta sinn, upp á tilraunaútsendingar á svokölluđu Heimsljósi Baggalúts - sem er nýjung í miđlun sannleikans hérlendis. Einnig er hćgt ađ hlusta á nokkurn fjölda dćgurlaga međ hinni kunnu Köntrísveit Baggalúts og fleira og fleira.

Ţađ er von ritstjórnar ađ breytingarnar mćlist vel fyrir og hér muni, sem hingađ til, blómstra frjótt og fallegt menningarlíf ţar sem sannleikurinn er í fyrirrúmi.

Lifi sannleikurinn!

Númi Fannsker 2/9/07
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA