Forystugrein – Enter
Enter

Bittinú. Ţá hafa krúttlegu ljósfćlnu sortućxlin sem dafna í myrkviđum Landbankans sent frá sér yfirlýsingu ţar sem ţau kvarta sáran yfir ţví ađ veriđ sé ađ pönkast í Halldóri Ásgrímssyni nokkrum vegna meints afláts innan bankakerfisins.

Ţeim finnst hann nefnilega ekki eiga líđa fyrir afskipti sín af stjórnmálum.

Ţađ er nefnilega ţađ.

Nú veit ég ekki fyllilega hvađa málskilning ţessir bankasvartálfar ţarna hafa tamiđ sér í einverunni en ég hefđi fjandakorniđ haldiđ ađ Halldór ţessi hafi haft örlítiđ meira en afskipti af íslenskum stjórnmálum.

Einhver gćti sagt ađ hann hefđi beinlínis haft lúkur og limi á bólakafi í öllum glufum íslenskra stjórnmála í rúma ţrjá áratugi.

Og ef minniđ svíkur mig ekki var hann einmitt herraráđ sjávarútvegs bróđurpart 9. áratugarins. Leyfi ég mér ađ fullyrđa ađ á ţeim ágćtu árum hafi baráttan milli Duran Duran og Wham! ekki átt hug hans allan.

Seinna vasađist hann eitthvađ smávegis í utanríkismálum og gott ef hann varđ ekki síđast og síst forsćtisráđherra.

Ef ţađ kallast afskipti ţá er ţađ svo sem gott og vel – en hann hefđi ţá kannki mátt hafa vit á ţví ađ skipta sér ekki af ţví sem kom honum og buddunni hans beinlínis viđ.

Lesbók frá fyrri tíđ

Ţađ er mér sönn ánćgja ađ kynna tímamótanýjung á vefsvćđum Baggalúts, nefnilegast hiđ svokallađa „Baggablogg“, sem byggir á svokölluđu „bloggi“, sem mun vera ţađ heitasta af öllu heitu í netheimum ţessi misserin.

Gefst innvígđum bloggurum Baggalúts hér kjöriđ tćkifćri til skođanaskipta um menn, málefni og líđandi stundir - auk ţess sem ţetta er kjörinn vettvangur skítkasts og yfirdrullunar.

Fyrst um sinn verđur ađeins valinkunnum íslenskum stjörnubloggurum hleypt ađ, en hver veit nema Baggabloggiđ verđi innan tíđar svo yfirgengilega vinsćlt ađ fleirum verđi hleypt ađ í fyllingu tímans.

Má sjá sýnishorn af blogginu hér til hćgri, en enn um sinn gefst einungis áskrifendum vefsvćđa Baggalúts međ platínum- eđa kóbaltáskrift kostur á ađ lesa bloggiđ í allri sinni dýrđ - auk gáfulegra tímamótaathugasemda Baggabloggara viđ fréttir og greinar á vefnum.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 22, 23, 24  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA