Dagbók – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Ţá er Airwaves-ćđiđ runniđ af Íslendingum í bili. Hippsterarnir farnir heim međ plastpassaröđina á framhandleggnum og bjór í hárinu.

Menningarpáfinn ég lét ekki mitt eftir liggja, međ VIP- og grćnkompupassa til beggja handa vippađi ég mér inn á hvern stórviđburđinn á fćtur öđrum.

Ţetta bar hćst:

1. Primary Kitchen. Norsk-flćmskur dúett sem spilar hart síđpómóskt pönkskotiđ rćflathrash undir sterku neo-frođublendings hip-hoppi. Mjög skemmtilegt band sem tók alla sína bestu slagara, ţar á međal lagiđ sitt fallega Urban Twist og epíska rokk-hybridbálkinn Sunday Monday.

2. Batmyn. Sćnska drottningin heillađi viđstadda upp úr skónum međ fallegu ţjóđlagaskotnu techno-flex sándi. Sérstaklega var skemmtilegt ađ heyra í gamla brýninu Göran Hexerman fara hamförum á ţráđlausan víbrafón úr gipsi.

3. Gemini Lepricon. Frábćr einmenningssveit sem skilađi vel drungalegum Crapcore textum á borđ viđ hinn magnađa Zombie Dance, ţar sem segir m.a.(međ leyfi forseta):
I am Wax
I am Turbo
No
Sex is happy.
Cum together .

4. MEGNONOGME. Breskt nýaldarflipttrapp eins og ţađ gerist best. Ţriggja manna söngframvarđasveit borin uppi af margslungnum Crash-grugg-synthakvintett. Mjög smart.

5. Samkór Rangćinga. Hápunktur sunnudagsins var ţessi stórbrotni blandađi kór sem fór á kostum í óhefđbundinni nálgun sinni viđ íslenskan drottningadiskóarf.

Lesbók frá fyrri tíđ

Mér er í nöp viđ Ozzy Osbourne.

Hann er heiladauđur villimađur, sem á árum áđur komst upp međ ađ kalla sig rokksöngvara - ţó hann vćri iđulega međ trantinn fylltan gúmmíleđurblökum, hćnsnum eđa túmatsósu - og kćmi aldrei upp öđru en djöfullegum hryglum og hvćsi.

Ţetta síđhćrđa rokksögulega ćxli grćđir nú peninga sem aldrei fyrr á ţví ađ starfrćkja fjölleikahús á heimili sínu ásamt lausgyrtri spúsu sinni og tveimur fitusprengdum afkvćmum.

Af einhverjum undarlegum ástćđum hefur ţessi fordćmalausi flóasirkús náđ vinsćldum - og ţví hefur hinn akfeiti heróínmettađi hrakfallabálkur, Ozzy, náđ ađ trođa sér inn í heimsfréttirnar - nánast daglega.

Ađ ósekju.

Nýjasta afrekiđ sem skók heiminn átti sér stađ í fyrradag. Ozzy ákvađ nefnilegast ađ vippa sér á bak fjórhjóli og leika sér svolítiđ. Međ ţađ í huga ađ ţessi hálfsextugi líknarbelgur getur međ naumindum stađiđ óstuddur kom ţađ ekki á óvart ađ hann skyldi kollsteypast af baki og brjóta í sér ţó ţau fáu bein sem leyndust í hlaupkenndum skrokknum.

Nú liggur vesalings Ozzy á spítala međ myndavél viđ hvert líkamsop. Greyiđ.

Megi hann liggja sem lengst.

Númi Fannsker – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Fannar Númason Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA