Lesbók18.10.10 — Númi Fannsker

Þá er Airwaves-æðið runnið af Íslendingum í bili. Hippsterarnir farnir heim með plastpassaröðina á framhandleggnum og bjór í hárinu.

Menningarpáfinn ég lét ekki mitt eftir liggja, með VIP- og grænkompupassa til beggja handa vippaði ég mér inn á hvern stórviðburðinn á fætur öðrum.

Þetta bar hæst:

1. Primary Kitchen. Norsk-flæmskur dúett sem spilar hart síðpómóskt pönkskotið ræflathrash undir sterku neo-froðublendings hip-hoppi. Mjög skemmtilegt band sem tók alla sína bestu slagara, þar á meðal lagið sitt fallega Urban Twist og epíska rokk-hybridbálkinn Sunday Monday.

2. Batmyn. Sænska drottningin heillaði viðstadda upp úr skónum með fallegu þjóðlagaskotnu techno-flex sándi. Sérstaklega var skemmtilegt að heyra í gamla brýninu Göran Hexerman fara hamförum á þráðlausan víbrafón úr gipsi.

3. Gemini Lepricon. Frábær einmenningssveit sem skilaði vel drungalegum Crapcore textum á borð við hinn magnaða Zombie Dance, þar sem segir m.a.(með leyfi forseta):
I am Wax
I am Turbo
No
Sex is happy.
Cum together .

4. MEGNONOGME. Breskt nýaldarflipttrapp eins og það gerist best. Þriggja manna söngframvarðasveit borin uppi af margslungnum Crash-grugg-synthakvintett. Mjög smart.

5. Samkór Rangæinga. Hápunktur sunnudagsins var þessi stórbrotni blandaði kór sem fór á kostum í óhefðbundinni nálgun sinni við íslenskan drottningadiskóarf.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182