Hvað í þrívíðum þurrundnum þorskhausum á það að fyrirstilla að nefna nýjustu samgönguholu landsins Bolungarvíkurgöng?
Er ekki nóg hlaðið undir innlyksa útnárarassa bévítans víkaranna að tappatoga heilt fjall fyrir þá? Svo þeir geti valsað óhindrað á forugum ballskóm og uppþembdum heilsársdekkjum inn í óspilltan og ægifagran Hnífsdalinn allan ársins hring.
Þarf líka að kenna verksummerkin við þessa dauðhreinsuðu víkurómynd þeirra?
Einhverjum sætabrauðsnúðum hafa þeir troðið í gin samgönguráðherra til að fá þessa svívirðu samþykkta.
Svei attan.
Hnífsdalsgöng eru þetta og Hnífsdalsgöng skulu þau heita.