Lesbók16.09.10 — Enter

Ómar Ragnarsson er æði.

Ég held raunar að hann sé einn æðislegasti maður í heimi. Ef ekki sá æðislegasti.

Hann er í öllu falli sá æðislegasti á íslandi.

Við eigum að vera góð við Ómar. Og alla litlu Ómarana sem búa í honum. Því Ómar er landið og Ómar er þjóðin. Við eigum öll dálítið í honum – og hann í okkur.

Og við erum öll bölvaðir ekkisens asnar að hafa ekki kosið hann á þing. Helst einan.

En hvað um það. Til hamingju með afmælið Ómar. Megir þú eiga þau sem oftast. Heillakarlinn.

Að lokum geri ég það að tillögu minni að Ómar Ragnarsson verði settur á heimsminjaskrá.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182