Forystugrein – Enter
Enter

Hvaða mölúldni og maðkétni óþverri hefur eiginlega fengið að viðgangast í þessari bann- og skuldsettu Orkuveitu okkar? Fordæmalaus óráðsía, gegndarlaust fimbulsvínarí og linnulaust gleðispreð með almannafé.

Fussumfokkingssvei.

Ég legg hér með til og mæli um að eigendur þessa útmigna sandkassa helstu gæludýra borgaryfirvalda, reki alla oföldu orkuboltana öfuga út úr þessu bruðlhýsi án tafar og komið þeim fyrir í látlausu húsnæði annars staðar í borginni. Það er t.d. ágætis hús á horni Suðurlandsbrautar og Gernsásvegar, sem gæti hentað starfseminni fullkomnlega.

Orkuhreiðrinu mætti svo gjarnan breyta í leikskóla – með heimsins stærsta boltalandi í anddyrinu.

Lesbók frá fyrri tíð

Ritstjórn Baggalúts snýr nú aftur úr sumarfríi, endurnærð. Sumarfríinu vörðu ritstjórnarmeðlimir í gagngera endur­mennt­un; þ.á.m. þriggja vikna power-námskeið í stjórnun fjölmiðlasamsteypna, helgar­námskeið í sálar­rannsóknum og heilun, mánaðar­námskeið í hirðsiðum og æðri kurteisi og þriggja stunda tilsögn í angólskri útskurðartækni.

Nokkuð er um nýbreytni. Sérstaklega skal bent á baksíðu Baggalúts, sem nú er í fyrsta sinn aðgengileg á Internetinu. Þar má m.a. finna skrípó, þrautir og tilsögn í mannasiðum.

Einnig bjóðum við í fyrsta sinn upp á útprentanlegar myndir í djarfari kantinum í veggpjaldastærð á síðu 6.

Helsti styrktaraðili Baggalúts, hinn geð­þekki Tino Martini mun svo opna nýja, allerótíska og spennandi síðu á næst­unni.

Að lokum er rétt að minna landsmenn á að Köntrískífa Baggalúts er á leið til landsins með brynvarinni fílalest og er væntanleg í verslanir á allra næstu dögum.

Njótið vel.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA