Dagbók – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Ég vil bara taka það fram, svo það fari ekki á milli mála og sé algerlega á kristaltæru, að ég hef aldrei sofið hjá Eiði Smára. Bara svo það sé á hreinu.

Lesbók frá fyrri tíð

Hvað í þrívíðum þurrundnum þorskhausum á það að fyrirstilla að nefna nýjustu samgönguholu landsins Bolungarvíkurgöng?

Er ekki nóg hlaðið undir innlyksa útnárarassa bévítans víkaranna að tappatoga heilt fjall fyrir þá? Svo þeir geti valsað óhindrað á forugum ballskóm og uppþembdum heilsársdekkjum inn í óspilltan og ægifagran Hnífsdalinn allan ársins hring.

Þarf líka að kenna verksummerkin við þessa dauðhreinsuðu víkurómynd þeirra?

Einhverjum sætabrauðsnúðum hafa þeir troðið í gin samgönguráðherra til að fá þessa svívirðu samþykkta.

Svei attan.

Hnífsdalsgöng eru þetta og Hnífsdalsgöng skulu þau heita.

Númi Fannsker – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Fannar Númason Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA