
Ţađ er ţyngra en tárum taki ađ tilkynna samstarfsfélögum sínum ţađ ađ vegna ástandsins í ţjóđfélaginu hefur stjórn Baggalúts ehf. ákveđiđ ađ framvegis verđi ađeins ein kleina á mann međ seinna kaffinu.
Enn og aftur gera íslenskir smáglćpamenn sig ađ fíflum. Nokkrir rauđnefjađir glćpasnúđar grípa međ sér nokkur eiguleg raftćki frá Borgarskipulagi eftir prýđisvel heppnađ innbrot og burđast sigurreifir međ góssiđ heim til sín. Gangandi. Í nýföllnum snjó!
Ţetta er auđvitađ fyrir neđan allar hugsanlegar hellur.
Hvernig vćri nú ađ okkar góđu bófar tćkju sig saman og stofnuđu međ sér samtök. Héldu námskeiđ og fyrirlestra ţar sem fariđ er yfir grunnatriđi stigamennsku og glćpa. Međ samstilltu átaki hlýtur ađ vera hćgt ađ rćna svo sem eins og einn banka svo vel sé eđa hnupla sér brauđrist án ţess ađ verđa sér til eilífrar minnkunar.
Ţetta gengur ekki svona lengur. Íslenskur glćpaheimur á betra skiliđ en vera ađhlátursefni og skotspónn erlendra misindismanna. Viđ getum betur.