

Alltaf les maður eitthvað nýtt og skemmtilegt. Og upplífgandi.
Síðasta heilsubótarlesningin fjallaði um ráðherraábyrgð. Haldið þið ekki að hún fyrnist bara á þremur árum?
Sniðugt.
Slefar sumsé ekki yfir eitt kjörtímabil.
Sem leiðir huga að einu og öðru. Til hvers er verið að setja svona lög – og fyrir hvern? Og er eitthvað sérstakt því til fyrirstöðu að sturta svoddan gallgapandi dellu niður næsta tiltæka klóakrör?
Annað en ábyrgðarlausu fáráðlingarnir sem hafa hag af þeim?

Mér þykir vanta bæði framsýni og stórhug í alla umræðu um skipulagsmál hér á landi. Ótrúleg skammsýni ræður ríkjum. Framtíðin er neðanjarðar.
Við þurfum að byggja upp öflugt neðanjarðarhraðlestakerfi sem nær milli alla þéttbýlisstaða landsins og yfir á nærliggjandi eyríki og heimsálfur. Sanniði til, þegar slíkt kerfi er komið í gagnið þarf enginn lengur á flugvelli að halda.
Stynji menn af stórkostlegum
strípimeyjaskorti
sæmir góðum gjálífsþegum
að greiða með prívatkorti.


Nú veit ég að það er ekki til endalaust af peningum.
Og ég er ekki það fífl að halda að það sé hægt að gera bara það sem manni sýnist með þetta smotterí af þeim sem þó er til.
Einhverjir verða jú að vera atvinnulausir og einhverjir verða að sætta sig við fáeinar skemmdar tennur, páskaegg númer fjegur - og bónusskinku svona af og til.
Svona er þetta bara - og við vitum öll að svona verður þetta að vera. Við erum engir asnar.
Við þurfum bara að herða ólina eilítið og fara sparlega með þessar fáu krónur sem eru til skiptanna.
Því ef við gerum það - ef við neitum okkur um kexpakka hér og vídeóspólu þar - þá er aldrei að vita nema við getum einn góðan veðurdag keypt okkar eigið flugfélag - og borgað fyrir það með reiðufé.


ég vissi hann veikan
vesalings aumingja Reagan
ég vissi hann ráfa um algleymisakurinn bleikan
aumingja hann
ég höfði og huga til skaparans sný
og heiti á allt hans þý
að vakyfir vesalings Nansý
aumingja hún
og aumingja hann
já, ólukkans minnið að endingu sveikann
eymingjans vesalings Reagan
og aumingja vesalings við
og veröldin öll
að missennan magnaða leikmann
mannvininn Reagan
- og hver skyldi eiga að leikann?

Klæðskiptingar
Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.
Greiðendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpið – Sjónvarp
Til sölu
lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.
Togarasjómenn athugið!
Dönsku blússurnar komnar. Margar stærðir.
Vélasala Einars.