
Þá er Kaupþing búið að skipta um nafn. Enn eina ferðina.
Ágætis nafn svo sem. Þjóðlegt og gott að muna: Ari Jón.
Ég geri ráð fyrir að skírt sé í höfuð þeirra Ara fróða Þorgilssonar og Jóns Sigurðssonar.
En hinsvegar.
Ef þetta spreðhyski dirfist að framleiða svo mikið sem eina músarmottu með nýja nafninu og lógóinu – og fleygja á móti fullnýtilegum skrifstofubúnaði, neonskiltum eða brjóstsykurspappír – þá skal ég persónulega sjá til þess að skilanefnd Nýja Kaupþings éti hvert einasta nýlógóað pappírssnifsi upp til agna.
Heyrðu mig nú.
Hvað heldur þú þig eiginlega komast upp með það lengi að smyrja öllu þínu malbiki skammlaust eftir úttroðnum bakraufum landsbyggðarinnar meðan þorri þjóðarinnar situr fastur í endalitlum bílröðum á suðvesturhorninu og hreyfist ekki úr stað?
Það þarf nú déskotakornið ekki mikið til að við auðmjúkir þrælar þínir fáum komist lifandi, þurr og sæmilega heil á geðsmunum frá Sæbrautinni yfir í Grafarvoginn. Flest myndi hjálpa Sturla mín. Í alvöru. Þó ekki væri nema að fá tvo planka þarna yfir, eða lítinn kláf.
Og hvernig er með þessi margumræddu mislægu gatnamót í Kringlumýrinni? Þarf ég virkilega að draga hæstvirtan ráðherra þarna niðureftir á hægri eyrnasneplinum og tjóðra niður á gatnamótunum miðjum til að það kvikni á perunni?
Þú veist hvað verið er að tala um, er það ekki Sturla mín? Eða ertu enn og aftur að hygla déskotans dreifingjunum sem komu þér á koppinn? Það væri svosem eftir öðru.
Það er ekki nóg með að þetta ofdekraða útnárahyski þurfi heilan flugvöll í miðbæ Reykjavíkur til að komast sem fyrst í Kolaportið, heldur þarf það nú líka að geta brunað gegnum annan hvern hól, helst á tvöfaldri akgrein — á flóttanum suður.
Ég veit ekki betur en að í þau fáu skipti sem yfirleitt er hægt að brúka þessa margborguðu og sítroðnu útírassgatsslóða, þ.e.a.s. þegar þeir eru ekki á kafi undir vatni, aur, snjó - eða hreinlega týndir — þá komist þeir fáu skrjóðar sem það þurfa ágætlega milli staða.
En nei. Hæstvirtur ráðherra getur vitanlega ekki hugsað sér að það komi rispa á alla fínu nýkeyptu snæfells- og hnappdælsku jeppana af einhverjum sjoppulegum malarvegi. Onei. Það verður að malbika hvern einasta helvítis kindaslóða og leggja göng um hverja bévítans þúfu sem fyrir verður á leið jeppaflota íslenska lýðveldisins upp á jökul eða ofan í næsta gljúfur. Skárra væri það nú.
Á meðan situr höfuðborgarhyskið staðdeyft og starir dáleitt í bremsuljós náungans. Helvíti sátt bara.
Húrra fyrir því, Sturla mín. Húrra fyrir þér.