Lesbók30.10.09 — Enter

Meðan ég man.

Einhversstaðar las ég að það ætti að halda áfram að endurútgefa þjóðargersemarnar um Tinna.

Sem er vel. Stórvel meir að segja.

En bíðum nú pollhæg – nú hyggjast forleggjararnir gefa þær út í nýju broti. Smærra. Þá geri ég ráð fyrir að átt sé við staðaldvergbrotið sem nú er í tísku að troða menningarverðmætum í úti í hinum stóra heimi.

Það á sumsé með öðrum orðum að niðursjóða Tinna – og bera á borð fyrir komandi kynslóðir sem hvern annan skyndirétt.

Þetta verður að stöðva. Og það strax.

Því hver veit hverju þessir hryðjuverkamenn taka næst upp á – Flateyjarbuslubók?

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182