Netið við Inter, alþýðan spyrnt er
ofan í sófum, bak flóðlýstum skjám.
Lýðræðið blint er, í blogglúðrum kynt er
á bókstafsins þingvöll vér læðumst á tám.
Blogg! Blogg! Á öll þarf að kíkja!
Blogg! Blogg! Bæði slæm og góð!
Á þrasi, tuði, þrætum
– þúsund terabætum –
nærist ætíð þessi þjóð.