Forystugrein – Enter
Enter

Fáeinar spurningar.

Af hverju er háttvirtum þingmönnum leyft að skjögra ítrekað í pontu, þvoglumæltum og útúrdúruðum?
Finnst háttvirtum þingheimi fyndið og sniðugt að espa og egna þessa sömu þvoglumæltu háttvirtu þingmenn ítrekað til að stíga í pontu og gera sig að fífli?
Er það virkilega stemmarinn á hinu háa Alþingi?
Og er bara allt í lagi að háttvirtir þingmenn, þvoglumæltir eður ei, sitji að kvöldlagi á þessu sama háa Alþingi, flissandi eins og smástelpur?
Eiga háttvirtir þingmenn, þvoglumæltir eður ei, ekki að vera að ræða eitthvað af viti?
Í það minnsta meðan þeir eru í vinnunni?
Fær þetta hyski greidda yfirvinnu ellegar álag fyrir fliss og frammíköll að kvöldlagi?
Eða þvoglumælgi?

Og.

Hvað í sótthreisuðum sokkaplöggum andskotans er háttvirtur þingmaður að þvælast, þvoglumæltur eður ei, á golfmóti MP banka?

Lesbók frá fyrri tíð

Ég hef tamið mér allt að því ófrávíkjanlega reglu í samskiptum mínum við ofurfrægar hollívúddstjörnur.

Ég læt þær algerlega í friði, svo lengi sem þær abbast ekki upp á mig af fyrra bragði, heimta mynd af sér með mér, nú eða grátbiðja mig um að krota á brjóstin á sér.

Þetta á við um allar ofurfrægar amerískar stjörnur, að undanskilinni Barbru Streisand, hana áskil ég mér fullan rétt til að slefa yfir, ónáða og knúskaffæra, hvar sem ég kemst í tæri við hana.

Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Spesi – Forystugrein
 
Spesi – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 86, 87, 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA