Lesbók21.08.09 — Enter

Hananú.

Í dag birtir rauðröndótta uppvakningsskeinildið DV úttekt á því sem það kýs að kalla „Fyndnasta fólk Íslands“.

Þar telja spákonur, handknattleiksmenn, stílistar og aðrir fróðleiksbrunnmigar upp þá sem þeim þykja fyndnir og skemmtilegir.

Nú ætla ég ekki að voga mér að efast um steinígreypta yfirburði Péturs Jóhanns og Jóns Gnarrs við hláturtaugakitl í sinni vaktavinnu, óumdeilda hæfileika Ladda í fjölbragðagríni né heldur gera lítið úr sprenghlægilegu menningarsögulegu framlagi annarra þungaviktarsprelligosa íslenskra sem þarna tróna skælglottandi í efstu sætum.

Og ekki ætla ég að fjölyrða hér um að Jóhanna Sigurðardóttir og Haffi Haff komist þarna á blað.

Hins vegar er ég bæði sár og reiður – og eiginlega alveg hoppandi öskrandi bandsjóðandi illur – yfir því að hvergi sé minnst einu orði á Sigmúnd.

Skammist ykkar bara.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182