
Hvernig getum við Íslendingar fengið af okkur að fagna úrslitum Eurovision þegar ástkærir frændur okkar Svíar lenda í 21. sæti – og Finnar á botninum, í 25. sæti?
Hvar er samstaðan, norræna vinarþelið?
Erum við í raun og veru svona harðbrjósta, skammsýn og sjálfselsk?
Svei ykkur.
Var að heyra af breyttu fyrirkomulagi á kjörstöðum, vegna kosninga til stjórnlagaþings. Menn eru víst uggandi vegna himinhás flækjustigs þeirra. Hætt er við því að fólk muni taka sér drjúgan tíma í kjörklefa og því hætt við örtröð á kjörstað. Og lausnin? Jú, sérstök kjörborð! Sérsmíðuð og fjöldaframleidd, sérstaklega fyrir kosningarnar. Á þessum litlu, semkklegu básum, getur fólk dundað sér daglangt við að krossa við með litlu blýöntunum sínum og velta fyrir sér öllum skúmaskotum kjörseðilsins.
Sniðugt.
Ekki vil ég vera leiðinlegur, eða hnýta í þessa krúttlegu og byltingarkenndu kjörbása. En mér er engu að síður spurn. Væri ekki ráð að kynna skipuleggjendur kosninga hér á landi fyrir undrum svokallaðs rafmagns og skemmtilegum fylgifiski þess – tölvutækninni?