Dagbók – Enter
Enter

Voðalegt er að sjá þetta blessaða hústökufólk. Hvað er það að troða sér inn í eitthvað niðurnítt pöddugreni, fullt af sagga og fúkkalykt.

Sýna smá metnað krakkar.

Ég veit ekki betur en það sé allt fullt af auðum, smekklega innréttuðum hæðum í Borgartúninu, sem bíða þess að einhver góðhjartaður anarkisti taki sig yfir.

Þar gætu þessi himpigimpi jafnvel komist í bað.

Lesbók frá fyrri tíð

Nú ætla roðamaurarnir í vinstri flenniflokkunum að láta kenna sig við Norræna húsið. Velferðina, Ikea, fríu sprautunálarnar og allt það dauðhreinsaða húmbúkk.

Norræna skal hún heita. Hvað sem tautar og hvað sem raular.

Eins og húsið. Og eins og ferjan.

En ætli Steingrímur viti að ferjumaðurinn rauðibirkni siglir ekki lengur til Noregs?

Heldur beint í Evrópusambandið.

Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4, 5 ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA