Dagbók – Enter
Enter

Vođalegur tepruskapur er ţetta.

1.000 milljarđar ţetta og 4.000 milljarđar hitt.

Segjum ţetta bara beint út og venjumst ţví.

Viđ skuldum billjónir á billjónir ofan.

Jibbí. Viđ erum orđin stór.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíđ

Breskir dónakarlar völdu á dögunum leikkonuna snoppufríđu Evu Longoriu ţá kynţokkafyllstu í heimi.

Ţessi smágerđa Texasmćr, sem varđ ţrítug fyrr á ţessu ári, hefur sannarlega skotist hratt upp stjörnuhvolfiđ og er ţar helst um ađ kenna frammi­stöđu hennar í ţáttunum um eiginkonurnar ađţrengdu, sem einmitt eru í miklu uppáhaldi hjá ritstjórn Baggalúts.

Ţađ kom mér ekki á óvart ađ hún Eva mín skyldi rúlla yfir ađrar draumheimadrottningar í ţessu kjöri ţví ekki er öfsögum sagt ađ skjárinn hreinlega ljómi upp ţegar hún trítlar um fyrir framan myndavélarnar ellegar stútsetur ţrýstnar varirnar og dillar straumlínulöguđum lendunum framan í heimsbyggđina.

Helst ađ hún minni á blessunina hana Victoriu Principal á velmektarárum Dallass — nema hvađ Gabrielle í seiđandi túlkun Evu er vissulega ólíkt ástríđufyllri, tilkippilegri og útsjónarsamari en hin hreinlynda Pamela.

Baggalútur óskar henni Evu sinni hjartanlega til hamingju međ ađ hafa loks hlotnast sú viđur­kenning sem henni ber og vonar svo sannarlega ađ hún nái ađ fóta sig á hálli braut frćgđarinnar og fái tiplađ léttklćdd og litfríđ um skjái og skerma heimsins um ókomna framtíđ.

Enter – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 45, 46, 47  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA