Dagbók – Myglar
Myglar

...og ríka, hamingjusama Ísland að stíga út úr sturtunni eins og ekkert hefði í skorist, eins og Bobby Ewing forðum.

Því handritið eins og það er núna er klárlega ekki að virka, það er alveg ljóst.

Lesbók frá fyrri tíð

Af hverju þarf samkeppni alltaf að snúast upp í það að apa eftir öðrum?

Af hverju þarf pefsí að vera með kókbragði? Mónuegg með nóabragði? Tannkrem með ... tannkremsbragði?

Af hverju þarf hver einasta andskotans saltstöng að bragðast nákvæmlega eins? - og er einhver lögboðin alheimsforskrift að útliti sígarettna?

Stundum held ég svei mér þá að það sé bara einn treggáfaður sjimpansapi sem framleiðir tónlistamyndbönd, spjallþætti, auglýsingar og fréttir þessa heims.

Þetta er ekki mönnum bjóðandi!

Af hverju getur olís ekki verið með grænt bensín, esso blátt og skeljungur skærrautt?

Af hverju þarf alltaf allt að vera eins?

EINS OG HVAÐ?!

Enter – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA