Dagbók – Enter
Enter

Nú eru það athyglissjúkir sjálfsdýrkendur annars vegar og læðupokalegir valdasjúklingar hins vegar, sem leiðast út í pólitík. Í stöku tilvikum veruleikafirrtir hugsjónamenn. Það er ekkert leyndarmál. Hefur aldrei verið.

Samt kemur það alltaf jafn skemmtilega á óvart þegar þessir ósjálfbjarga skjólstæðingar okkar minna á þessa staðreynd í leik og starfi.

Lesbók frá fyrri tíð

Það er ljóta bévítans undanrennan sem okkur Reykvíkingum er boðið upp á fyrir þessar borgar­stjórnarkosningar.

Hvað vakir fyrir flokkunum með því að trana fram þessum meinleysislegu, mállausu himpigimpum sem leiða framboðslistana?

Þarna höfum við, á leiksviði leiðindanna, tvær útjaskaðar atkvæðahrífur úr verkfæra­skúr Valhallar (aðra raunar í láni), síðasta framsóknar­manninn, dr. dauðyfli og einhverja konu sem elskar strætó.

Er þetta mönnum bjóðandi?

Eina kosningabáráttan snýst um að reyna að drepa hina frambjóðendurna úr leiðindum - auk þess að líma gleiðglottandi smetti málleysingjanna fimm og attaníossa þeirra í sem flesta glugga borgarinnar.

Hverjum er ekki drullusama hvernig einhverjir tilvonandi borgarstarfsmenn eru tenntir? Eða hvað skórnir þeirra sjattera vel við fimbulfokkings gleraugun? Hvernig væri að fá að vita hverju þessir útvötnuðu glansgosar ætla að koma í verk næstu fjögur árin? Að undanskildu því að jaska út stimpilklukku ráðhússins, sem virðist vera meginmarkmið allra flokka.

Mér er ekki skemmt.

Hvað varð um kjaftforu bakstingandi kratakvikindin? Skammsýnu þéttbýlis­hatandi framsóknar­durgana? Nú eða komma­skrattana, blessaðar litlu ljótu rauðrófurnar? Mikið gæfi ég fyrir eina eldhressa hugsjónaprýdda alpahúfu makandi tómatmauki á aldraða sjalla á kjördag.

Og vel á minnst. Maður getur ekki einu sinni kosið Sjálfstæðislokkinn sinn blessaðan með góðri samvisku lengur - án þess að eiga það á hættu að um upp um hvippi og hvappa spretti gjaldfrjálsir skeiningaskúrar fyrir ungabörn og gamalmenni. Hvað í drafandi dauðanum varð um gamla góða eiginhagsmuna­fasismann? Hvar er hrokinn og yfirgangurinn sem ég lærði ungur að elska?

Allt er það á bak og burt. Eftir situr fölblá miðjuráfandi atkvæðasuga með sogið stillt af alefli á óhugsandi úthverfakíttið. Svei því alla daga.

---

Þetta er búið. Málleysið hefur tekið yfir. Það er ekkert gaman að þessu lengur - allt eins hægt að kasta bara upp á úrslitin. Nú eða á kjörseðilinn.

Sem ég mun og gera.

Enter – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA