Það er nú aldeilis fínt að vita til þess að Alþingismenn séu komnir í frí til 20. janúar. Sjálfur þarf ég reyndar að mæta í vinnu 29. desember, eins og raunar langflestir Íslendingar. En það er sosum ekki eins og það liggi neitt sérstakt fyrir á Alþingi þessa dagana eða einhver áríðandi verkefni bíði úrlausnar.