Lesbók14.11.01 — Númi Fannsker

Reðurtákn eru fjölmörg í höfuðstað vorum og nágrenni hans. Allajafna vekja slík mannvirki aðdáun og jafnvel losta, þeim sem þannig eru stemmdir. Eitt er þó það skrípi sem óspakir menn hafa sæmt nafnbótinni "reðurtákn", sem ekki er annað en lítilsverð sjoppa og verkfæri kúgarans í vestri. Glöggir lesendur átta sig sjálfsagt á að hér er átt við svokallaða Smáralind sem öllu tröllríður í samfélagi voru nú um stundir. Merkileg er sú tilhneiging þjóðar vorrar að gera smálegum hlutum hátt undir höfði, jafnvel svo mjög að setja aftankreisting sem þann sem í Smára liggur, á stall með fegurstu og áhrifamestu mannvirkjum þjóðarinnar. Að kalla Smáralind reðurtákn er eins og að segja Perluna flatbrjósta og Hallgrímskirkju rislitla. Skammist yðar, þér þrælar vestursins, lítið í spegil og berjið augum smán þá sem þið kallið yfir þjóð ykkar.Góðar stundir

Nú geturðu sent Núma tölvupóst!

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182