
Það er rétt að vekja athygli útvarpsunnenda á að þátturinn „Betri stofan“, í umsjá Baggalúts hefur göngu sína á meginrás ríkisútvarpsins á morgun, laugardaginn 7. júní. Klukkan 18:26 að staðartíma.
Í þættinum verða meðal efnis vandaðir pistlar um náttúrufræði og tísku, ásamt ljóðmælum og laufléttri tónlist.
Langbylgjustöðin á Gufuskálum sendir á 189 kHz og Eiðum á 207 kHz.
Þá ganga enn einir páskarnir í garð. Hátíð ljóss og friðar, súkkulaðis, magaverkja og leikinna heimildamynda.
Um leið og við minnumst Krists, vel heppnaðrar upprisu hans og stofnun fyrstu súkkulaðiverksmiðjunnar undir hans stjórn fyrir botni Miðjarðarhafs er ekki úr vegi að rifja upp lítinn lagstúf úr smiðju fésmáluðu glaumgosanna sívinsælu í Kiss, sem Baggalútur talsetti fyrir nokkrum árum.
Vesgú: Páskaegg.