
Ţađ er rétt ađ vekja athygli útvarpsunnenda á ađ ţátturinn „Betri stofan“, í umsjá Baggalúts hefur göngu sína á meginrás ríkisútvarpsins á morgun, laugardaginn 7. júní. Klukkan 18:26 ađ stađartíma.
Í ţćttinum verđa međal efnis vandađir pistlar um náttúrufrćđi og tísku, ásamt ljóđmćlum og laufléttri tónlist.
Langbylgjustöđin á Gufuskálum sendir á 189 kHz og Eiđum á 207 kHz.
Núna eru allir ađ blogga. Núna. Ţegar mađur hélt ađ allir vćru búnir ađ blogga nćgju sína. Um skilnađinn. Um ástandiđ. Um pólitíkina. Um allt. Um ekki neitt. Nei ţví var ekki ađ heilsa. Núna verđa menn ađ blogga. Eins og ţeir lifandi geta. Annars eru ţeir aumingjar. Međ hor. Eđa ekki hor. Ţeir verđa bara ađ blogga. Eins og manni komi ţađ eitthvađ viđ hvađ uppgjafarblađamönnum og brottflćmdum pólitíkusum finnst um „ástandiđ“. Eđa hvađa plötur yfirlýsingaglađir ungfeministar hlusta á. Mér er sama! Skítsama!
Og núna getur mađur ekki skođađ Moggann sinn á Netinu án ţess ađ framan í mann sé klínt glóđvolgu bloggi. Héđan og ţađan. Allir hafa skođanir. Allir vilja deila međ alheiminum hyldjúpum vangaveltum sínum um sjónvarpsdagskrána. Krćst! Hvađ gerđuđ ţiđ áđur en ţiđ fóruđ ađ blogga? Gáfuđ ţiđ út dagblađ? Einarsfréttir? Tímaritiđ Guđmund? Stóđuđ ţiđ á torgum og görguđuđ yfirlýsingar um bíóferđ helgarinnar og hvađ ţiđ borđuđuđ í kvöldmat?
Í guđsalmáttugsbćnum, togiđ nefiđ úr naflanum á ykkur og geriđ eitthvađ sem skiptir máli. Ţiđ gćtuđ tildćmis skrifađ tuđgreinar á grínfréttavef.