Lesbók08.05.08 — Enter

Eru engin takmörk fyrir tuðflæði þessarar þjóðar?

Mér væri sama þó fráskilinn síamstvíburi Ólafs F. Magnússonar væri tekinn við sem stórvesír yfir miðborginni. Og mér væri rennislétt sama þó hann fengi sjálft Þjóðleikhúsið að launum, jafnvel Hverfisgötuna alla - kæmi hann einhverju í verk.

Það er þó andskotakornið verið að gera eitthvað annað í þessu dauðvona tjarnsokkna ráðhúsi en að sprengja meirihluta, brýna hnífa og máta stóla. Í fyrsta skipti í langan tíma.

Það er þó í öllu falli lífsmark með Jakobi Frímanni Magnússyni - annað en ómálga uppvakningunum sem ráfa þar um ganga dags daglega og svara ekki svo mikið sem í síma.

Ég lái sannarlega ekki Ólafi Effi að hóa í vin sinn Jakob til að leika við sig - fyrst enginn annar nennir því.

 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Saga
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Kaktuz — Saga
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 178, 179, 180, 181, 182