Rak augu í það að einhver brasilískur tuðruspyrðill var að ýfa fjaðrir og ybba gogg vegna þess að vændistríó sem hann hafði keypt til starfa reyndist að upplagi karlkyns, þegar til kasta kom.
Í hans sporum hefði ég nú bara þakkað mínum sælasta fyrir að þurfa ekki að borga aukalega fyrir viðlíka lúxusþjónustu.