á ég nú lífiđ ađ leysa
ljótt er ţađ, klúđur og hneysa
kóngur vill koll minn
kviđ, tćr og hroll minn
ef tekst mér ei rímhöll ađ reisa
ţví yrki ég saman og sundur
sögulegt ljóđkynja glundur
er fjallar um fall mitt
í forugan gallpytt
í kvćđinu hetjan er hundur
í pyttinn ég féll kringum páska
er pissa ég vildi af gáska
klístrađ var klóiđ
í klípu var róiđ
skítugt var skáldiđ í háska
ţar sem ég sat ţar í sárum
sá til mín hrúga af hárum
glađlega gelti
gaf til mín belti
fés mitt, ţađ flóđi í tárum
hér fćrđu höfuđlausn mína
höfđingi manna og svína
ef líkar ţér lítiđ
ljóđformiđ skrítiđ
í tákn skaltu reyna ađ rýna
Mér ţykir rétt ađ drepa hér á nokkrum vinsćlum umfjöllunarefnum, lauslega.
Evran.
Viđ höfum andskotakorniđ ekkert međ ţessa Evru ađ gera. Viđ eigum bara ađ drulluháleistast til ađ fara almennilega međ krónuna okkar og sýna henni tilhlýđilega virđingu.
Hlutabréf.
Hverjum er ekki sama ţó ţessi útúrsnýttu bréfsnifsi fuđri upp? Ţetta er mjög einfalt. Ef eitthvađ er ekki til í alvörunni – ekki kaupa ţađ.
Viđskiptafréttir.
Var ekki passlegt ađ hafa ţetta allt á leiđinlegu síđunni í Mogganum? Ć, ţiđ vitiđ, ţessari ţarna rétt aftan viđ miđju.
DeCode.
Af hverju fćr Kári ekki bara huggulegan kontór í einhveri háskólabyggingunni međ sćmilegri tölvu og stórum hörđum diski? Ţarf virkilega ađ flćkja máliđ svona?
Styttur.
Ţví fleiri styttur, ţví betra. En erum viđ í alvöru ekki komin lengra en ađ Tómasi Guđmundssyni? Og var hann ekki búinn? Kommon. Hvar er Jón Páll? Kiljan? Hvar er mođerfokking Ríó Tríó?
Ásdís Rán.
Er ekki hćgt ađ hafa hana einhvers stađar í beinni? Ég verđ bara ađ vita meira um hana.
Borgarfulltrúar.
Hér í eina tíđ hefđi ég ekki getađ nefnt einn einasta borgarfulltrúa međ nafni. Nú er smetti hvers eins og einasta ţeirra greypt inn í heilabörkinn á mér. Ţiđ eruđ borgarstarfsmenn – ekki fyrirsćtur.
Kreppan.
Mér býđur viđ fólki, kjagandi í eigin spiki upp í rađgreidda jeppann sinn međ útbelgda poka af sćtindum og ropvatni til ađ sturta í sig og sína yfir heiladeyfandi pönnukökuskjánum sínum, sem dirfist ađ taka sér ţetta orđ í munn.
Bankarnir.
Hvađa fáskrúđsfirra er ţađ ađ bankarnir eigi ađ vera góđir og tillitssamir? Síđan hvenćr? Bankar eru vondar, gráđugar, valdasjúkar blóđsugur međ ţađ eitt ađ markmiđi ađ grćđa peninga. Ađ búast viđ öđru er barnalegt.
Eimskip.
Ţađ er algerlega ólíđandi ađ fara svona međ sjálft akkeri íslenska lýđveldisins. Ţeir sem eru ábyrgir ćttu ađ vera kjöldregnir. Ítrekađ.
Virkjanir.
Stífla allt helvítis drasliđ. Stíflur eru töff. Mosi síđur.
Okriđ.
Hćttiđ ađ kaupa allt ţetta fokdýra drasl, bjánarnir ykkar. Í guđanna bćnum. Hćttiđ ađ kaupa!