gott er og gaman ađ pissa
gjálífistuđru ađ kyssa
held ég hún verđi nú hissa
held ég hún fćri ađ flissa
sú útriđna hiklausa hryssa
ef á hana myndi ég pissa
fátt er mér kćrren ađ kúka
er kögglar úr mallanum fjúka
ţegar ţeir ţarmana strjúka
og ţrýsta á endastöđ mjúka
ţá finnst mér lífinu ljúka
og langar strax aftur ađ kúka
ţađ er mér unun ađ ćla
engin er göfugri sćla
er vindgörn og vélinda ţrćla
og velgjunni uppúr mér dćla
af gleđi ég má varla mćla
ţví mér finnst svo gaman ađ ćla
Mér er í nöp viđ Ozzy Osbourne.
Hann er heiladauđur villimađur, sem á árum áđur komst upp međ ađ kalla sig rokksöngvara - ţó hann vćri iđulega međ trantinn fylltan gúmmíleđurblökum, hćnsnum eđa túmatsósu - og kćmi aldrei upp öđru en djöfullegum hryglum og hvćsi.
Ţetta síđhćrđa rokksögulega ćxli grćđir nú peninga sem aldrei fyrr á ţví ađ starfrćkja fjölleikahús á heimili sínu ásamt lausgyrtri spúsu sinni og tveimur fitusprengdum afkvćmum.
Af einhverjum undarlegum ástćđum hefur ţessi fordćmalausi flóasirkús náđ vinsćldum - og ţví hefur hinn akfeiti heróínmettađi hrakfallabálkur, Ozzy, náđ ađ trođa sér inn í heimsfréttirnar - nánast daglega.
Ađ ósekju.
Nýjasta afrekiđ sem skók heiminn átti sér stađ í fyrradag. Ozzy ákvađ nefnilegast ađ vippa sér á bak fjórhjóli og leika sér svolítiđ. Međ ţađ í huga ađ ţessi hálfsextugi líknarbelgur getur međ naumindum stađiđ óstuddur kom ţađ ekki á óvart ađ hann skyldi kollsteypast af baki og brjóta í sér ţó ţau fáu bein sem leyndust í hlaupkenndum skrokknum.
Nú liggur vesalings Ozzy á spítala međ myndavél viđ hvert líkamsop. Greyiđ.
Megi hann liggja sem lengst.