Ég rak augun í það á einhverjum netmiðlinum að stýrivextir hefðu lækkað í landi Ungverja. Um 0,25 af hundraði. Þá standa þeir sumsé í 7,5%.
Í fréttinni kom einnig fram að 12 mánaða verðbólga þarna austurfrá hafi verið 8,3% í ágúst samanborið við 8,4% í júlí.
Nú er ég búinn að lesa þessar upplýsingar nokkrum sinnum, leggja þær og minnið og ígrunda þær allnokkuð.
Ég hef hins vegar enn ekki áttað mig á því af hverju þær ættu að koma mér við.