Í dag er fimmtudagur.
Enska orðið "thursday" dregur nafn sitt af hinum rauðbirkna norræna þrumuguði Þór. Danir votta þessum nautsterka risabana virðingu sína með nafninu "torsdag". Þjóðverjar fara í orðaleik með "Donnerstag", en vísa jafnframt til Þórs í þessu orði sem þýða má sem þrumudagur.
En hvað gera Íslendingar? Þeim þykir merkilegra að vísa til þess að þessi dagur sé sá fimmti í vikunni, byrji maður að telja á sunnudegi. Ömurlegt.
Bretar halda jafnan þingkosningar á fimmtudögum. Heimsendir verður á fimmtudegi í bókinni "The Hitchhiker's Guide to the Galaxy"