Sálmur – Myglar

Á fimmta degi kemur enginn í heimsókn
Ţá munu vćringjarnir flćmast yfir fljótiđ
og skjóta upp kollinum ţar sem síst skyldi
Eftir ţađ verđur vonlaust
ađ eiga viđskipti gegnum síma

Ţegar ađeins einn verđur eftir
byrja lćtin fyrir alvöru
Upp frá ţví munu biđrađir setja svip sinn á flestar veislur
Stóratburđur verđur í borg fjölvćttunganna
en enginn tekur eftir ţví.

Á ári tvíbytnunnar
gengur illa ađ halda uppi ásćttanlegu ţjónustustigi
Bjargvćtturinn kemur úr borg fuglanna
og viđ tíunda tungl mun hann
halda mikla rćđu um matreiđslu

Lesbók frá fyrri tíđ

Um helgina ţurfti ég ađ hafa afskipti af lögreglunni, eđa réttara sagt hafđi lögreglan afskipti af mér ţar sem ég ţótti leika Sibelius full hátt á ókristilegum tíma. Ég get bara ekkert ađ ţví gert - Sibelius hjálpar mér ađ hugsa. Hinsvegar brá mér nokkuđ í brún ţegar tveir lögregluţjónar hringdu hjá mér bjöllunni á ađfararnótt sunnudags. Ekki ađ mér ţćtti einkennilegt ađ lögreglunni hafi borist kvörtun - ţađ var í fullu samrćmi viđ hljóđstyrk hljómflutningstćkjanna og viđ vitum öll hvađ Sibelius getur veriđ ţreytandi til lengdar. Nei, ţađ sem kom mér á óvart var sú hryggđarmynd sem blasti viđ mér ţegar ég opnađi dyrnar. Tveir bólugrafnir unglingar á mittisúlpum međ derhúfur. Illa girtir. Úlpurnar of stórar. Sá sem mćlti fyrir ţeim félögum spurđi hvort ég vćri húsráđandi. Röddin brothćtt og nokkuđ skrćk.
Ég horfđi nokkra stund á ţessa polla á stigapallinum hjá mér og beiđ eftir setningunni: "Áttu dót á tombólu?" - en hún kom ekki. Ţví ţarna voru mćttir laganna verđir hvorki meira né minna. Fulltrúar réttlćtisins - sjálft framkvćmdavaldiđ!

Er til of mikils mćlst ađ lögregluţjónar beri međ sér ţađ vald sem ţeim ber ađ framfylgja? Eru derhúfur og stuttar pokaúlpur einkennisklćđnađur sem kallar á virđingu samfélagsins?

Ég bauđ drengjunum sleikibrjóstsykur - sem ţeir afţökkuđu, stakk heyrnartólunum í samband og hélt áfram ađ hugsa.

Númi Fannsker 22/9/03
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA