Lesbók17.09.01 — Myglar

Á fimmta degi kemur enginn í heimsókn
Þá munu væringjarnir flæmast yfir fljótið
og skjóta upp kollinum þar sem síst skyldi
Eftir það verður vonlaust
að eiga viðskipti gegnum síma

Þegar aðeins einn verður eftir
byrja lætin fyrir alvöru
Upp frá því munu biðraðir setja svip sinn á flestar veislur
Stóratburður verður í borg fjölvættunganna
en enginn tekur eftir því.

Á ári tvíbytnunnar
gengur illa að halda uppi ásættanlegu þjónustustigi
Bjargvætturinn kemur úr borg fuglanna
og við tíunda tungl mun hann
halda mikla ræðu um matreiðslu

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182